fbpx

HomeSkilmálar

Skilmálar

Aðeins aðilar skráðir fyrir áskrift hafa leyfi til að nýta sér aðgangskóða og aðstöðu AlphaGym 24/7 (Sport4You ehf.). Bannað er með öllu að lána aðgangskóða eða á annan hátt veita óviðkomandi aðilum aðgang að aðstöðunni.

AlphaGym 24/7 ber ekki ábyrgð á slysum, áföllum, meiðslum eða dauðsföllum sem kunna að verða í aðstöðu eða við not á tækjum AlphaGym sem ekki má beinlínis rekja til ásetnings eða stórkostlegs gáleysis af hálfu starfsmanna eða ábyrgðarmanna AlphaGym 24/7.

AlphaGym ber ekki ábyrgð á persónulegum munum viðskiptavina, hvorki tapi né skemmdum á meðan viðskiptavinur dvelur í aðstöðu AlphaGym.

Gerist viðskiptavinur sekur, af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi, um skemmdir á tækjum, búnaði eða húsnæði AlphaGym, verður hann bótaskyldur í samræmi við meginreglur íslensks bótaréttar

Viðskiptavinir skulu ganga vel um húsnæði AlphaGym, bera virðingu fyrir tækjum og sýna öðrum meðlimum tillitssemi og almenna kurteisi.

Viðskiptavinur gerir sér grein fyrir því að ekki er alltaf starfsmaður í æfingaraðstöðu AlphaGym.

Mánaðar uppsagnarfrestur er á áskriftarsamningum. Áskriftarsamningar eru ótímabundnir. Segja verður upp áskriftarsamningi með skriflegri beiðni á netfangið alphagym@alphagym.is eða á facebook síðu AlphaGym 24/7.

Vanefni viðskiptavinur ítrekað greiðsluskuldbindingu sína á umsömdum mánaðarlegu gjaldi er AlphaGym heimilt að setja kröfu sína í innheimtu. Jafnframt falla öll fríðindi og aðgangur viðskiptavinar úr gildi þar til greiðsla hefur verið innt af hendi.

Almennt aldurstakmark í aðstöðu AlphaGym er 18 ár en forráðamenn 15-17 ára barna geta veitt skriflegt leyfi og með því samþykkt að axla ábyrgð á dvöl og hegðun barna þeirra í AlphaGym.

Um okkur
Skráðu þig á póstlistann!

Allur réttur áskilinn © 2024